Fotbolti.net
01.05.09 - 14:12
Hafliði Breiðfjörð

Kristrún Lilja og Íris Björk taka við KR (Staðfest)

Kristrún Lilja mun stýra KR ásamt Írisi Björk Eysteinsdóttur.

Kristrún Lilja mun stýra KR ásamt Írisi Björk Eysteinsdóttur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kristrún Lilja Daðadóttir og Íris Björk Eysteinsdóttir hafa verið ráðnar þjálfarar kvennaliðs KR en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu nú í dag.

Þær taka við starfinu af Gareth O\'Sullivan sem var rekinn frá félaginu í síðasta mánuði vegna trúnaðarbrests.
Kristrún og Íris hafa handsalað samning til tveggja ára, með möguleika á framlengingu, en samningarnir verða undirritaðir á mánudag. Þær munu einnig sjá um 2. flokk félagsins.

,,Hlutverk þeirra verður að byggja upp framtíðarlið úr þeim efnilega leikmannahópi sem KR hefur,\" segir í yfirlýsingu félagsins.

Íris þjálfaði meistaraflokk KR frá haustinu 2004 og fram yfir mitt ár 2005 þegar hún fór í barnsburðarleyfi. Kristrún var ráðin þjálfari 2. flokks í byrjun febrúar á þessu ári.

Fyrsta verkefni þeirra verður leikur gegn Val í Meistarakeppni KSÍ á þriðjudag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.