Fotbolti.net
01.05.09 - 14:25
Hafliði Breiðfjörð

Alexandra Sveinsdóttir til FK Donn (Staðfest)

Alexandra í leik með Hetti síðasta sumar.

Alexandra í leik með Hetti síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Alexandra Sveinsdóttir er gengin í raðir FK Donn í Kristiansand í Noregi og er fjórði íslenski leikmaðurinn sem gengur til liðs við félagið.
Alexandra sem er tvítug hafði allan sinn feril leikið með Hetti á Egilsstöðum þegar hún gekk í raðir Pepsi-deildarliðs GRV í vetur. Hún ákvað svo að söðla enn lengra um og ganga til liðs við FK Donn.

Hún hóf meistaraflokksferil sinn hjá Hetti sumarið 2004 og skoraði 24 mörk í 66 leikjum fyrir félagið.

Sem fyrr sagði er hún fjórði Íslendingurinn sem gengur í raðir FK Donn í vetur. Áður höfðu þær Linda Rós Þorláksdóttir, Dagbjört Agnarsdóttir og Sonja Björk Jóhannsdóttir farið til félagsins en sú síðastnefnda kom einni frá Hetti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.