Fotbolti.net
01.05.09 - 15:07
Hafliði Breiðfjörð

Hollenski miðvörðurinn Mark Rutgers til KR (Staðfest)

Mark Rutgers í leik með KR í gær.

Mark Rutgers í leik með KR í gær.

Canon

Mynd: KR

KR-ingar er búið að semja við hollenska varnarmanninn Mark Rutgers sem hefur verið á reynslu hjá félaginu undanfarna daga en þetta kom fram í tilkynningu frá félaginu í dag.

Samningurinn er til fimm mánaða með möguleika á framlengingu til tveggja ára.
Rutgers sem er 23 ára gamall miðvörður kemur frá hollenska úrvalsdeildarfélaginu FC Utrecht. Hann æfði með KR undanfarna daga og lék svo allan leikinn í stórsigri á Reyni Sandgerði í gær.

KR missti tvo miðverði eftir síðasta tímabil þegar að Gunnlaugur Jónsson fór í Selfoss og Pétur Hafliði Marteinsson hætti.

Næsti leikur KR er gegn FH í Meistarakeppni KSÍ á mánudagskvöld en leikið er í Kaplakrika í Hafnarfirði í þessum árlega leik Íslands- og bikarmeistara síðasta árs.

Rutgers fær leikheimild á morgun og getur því leikið með KR í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.