01.05.12 - 13:36
Elvar Geir Magnússon
Arnar Sveinn Geirsson í Víking Ólafsvík (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Sveinn Geirsson hefur ákveðið að hefja fótboltaiðkun að nýju eftir stutt hlé. Hann mun spila með Víkingi í Ólafsvík í 1. deildinni í sumar.
Arnar er uppalinn hjá Val og leikið með meistaraflokki félagsins undanfarin ár. Í vetur ákvað hann að taka sér frí frá fótbolta en hefur nú tekið skóna fram að nýju.
Arnar er uppalinn hjá Val og leikið með meistaraflokki félagsins undanfarin ár. Í vetur ákvað hann að taka sér frí frá fótbolta en hefur nú tekið skóna fram að nýju.
„Félagaskiptin voru gerð í mesta bróðerni og vonar knattspyrnufélagið Valur að Arnar Sveinn finni gleðina að nýju og slái í gegn í sumar. Um leið og við óskum honum velfarnaðar og góðs gengis hjá Ólafsvíkingum, vonast Valsmenn til að sjá hann aftur fljótlega í Valstreyjunni að leika listir sínar að Hlíðarenda,\" segir í tilkynningu á vefsíðu Vals.
