01.05.12 - 14:06
Elvar Geir Magnússon
Hodgson búinn að gera fjögurra ára samning (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roy Hodgson situr fyrir svörum á fréttamannafundi sem byrjar klukkan 15 að íslenskum tíma. Enska knattspyrnusambandið (FA) hefur með yfirlýsingu staðfest að hann sé orðinn nýr landsliðsþjálfari.
Hodgson hefur skrifað undir fjögurra ára samning við FA en þessi 64 ára maður hefur samtals unnið átta deildartitla á ferli sínum og þjálfað landslið Sviss, Finnlands og Arabísku furstadæmana.
Hann kom Sviss á HM 1994 en það var fyrsta lokakeppnin sem þjóðin fór á. Meðal félaga sem hann hefur starfað hjá eru Inter, Blackburn Rovers, Grasshoppers, FC Copenhagen, Fulham og Liverpool.
Hodgson mun því léta af störfum sem knattspyrnustjóri West Bromwich Albion eftir leiktímabilið á Englandi. Hann mun stýra enska landsliðinu í fyrsta sinn í vináttulandsleik gegn Belgíu þann 2. júní. Hann verður svo við stjórnvölinn í lokakeppni EM í sumar.