Fotbolti.net
01.06.09 - 10:19
Hafliði Breiðfjörð

Carlo Ancelotti tekinn við Chelsea (Staðfest)

Ancelotti og Shevchenko fara frá AC Milan til Chelsea í sumar, sá síðarnefndi til baka úr láni.

Ancelotti og Shevchenko fara frá AC Milan til Chelsea í sumar, sá síðarnefndi til baka úr láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Carlo Ancelotti fyrrverandi knattspyrnustjóri AC Milan var í morgun staðfestur sem nýr knattspyrnustjóri Chelsea og gerir þriggja ára samning við félagið.
Ancelotti sem er 49 ára gamall tilkynnti í gær að hann sé hættur með AC Milan eftir að liðið endaði í þriðja sæti í ítölsku Serie A deildinni.

Hann tekur við starfinu hjá Chelsea af Guus Hiddink sem stýrði liðinu tímabundið frá febrúar út tímabilið eftir að Luiz Felipe Scolari var rekinn en ætlar að einbeita sér að þjálfun rússneska landsliðsins.

,,Carlo var sá kandídat fyrir starfið sem skaraði mest framúr,\" sagði í yfirlýsingu Chelsea nú í morgun.

,,Hann hefur í langan tíma sannað hæfileika sína til að byggja upp lið og hefur verið farsæll í stórum keppnum og Evrópukeppnum.\"

,,Hann átti líka mjög farsælan feril sem leikmaður í þessum keppnum og kemur því með alla þá reynslu sem þarf í starfið.\"


Ancelotti tekur formlega við liðinu 1. júlí en hann hafði verið í átta leiktíðir með AC Milan. Á þeim tíma gerði hann liðið að Evrópumeisturum 2003 og 2007 og undir hans stjórn vann liðið Serie A árið 2004. Hann hefur áður stýrt Reggina, Parma og Juventus.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.