Fotbolti.net
01.06.09 - 23:20
Hafliði Breiðfjörð

Pellegrini ráðinn þjálfari Real Madrid (Staðfest)

Manuel Pellegrini.

Manuel Pellegrini.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid staðfesti í kvöld að Manuel Pellegrini verði þjálfari liðsins á næstu leiktíð en þetta er fyrsta verk Florentino Perez síðan hann varð forseti félagsins í dag þar sem enginn bauð sig fram gegn honum.
Pellegrini kemur til Real frá Villarreal þar sem hann hefur verið undanfarnar fimm leiktíðir en hann er 55 ára gamall og kemur frá Chile.

Perez mun kynna Pellegrini fyrir fjölmiðlamönnum á morgun og ekki er búið að gefa upp hversu langan samning hans gerir.

Villarreal hafði áður sagt að það félag sem vildi Pellegrini þyrfti ða greiða upp samning hans sem er 4 milljón evra virði.

Pellegrini tekur við starfinu af Juande Ramos sem tók við Real Madrid í desember eftir að Bernd Schuster var rekinn.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.