01.08.08 - 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Víkingur fékk Eirík Viljar H. Kúld á láni frá FH (Staðfest)

Eiríkur fagnar marki ásamt Tryggva Guðmundssyni í leik gegn Víkingi í Lengjubikarnum í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiríkur fagnar marki ásamt Tryggva Guðmundssyni í leik gegn Víkingi í Lengjubikarnum í vor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Félagaskiptaglugginn hér á landi lokaði á miðnætti en áður en það gerðist kláruðu nokkur félög að ganga frá félagaskiptamálum sínum. Víkingur Reykjavík er eitt þessara félaga en þeir fengu Eirík Vilhjar H. Kúld á láni frá FH út leiktíðina.
Eiríkur er á sínu fyrsta ári í meistaraflokki. Hann hefur ekki fengið tækifæri með FH í sumar en lék nokkra leiki með liðinu í Lengjubikarnum og æfingaleikjum í vor og þar vakti hann áhuga Víkinga.
Eiríkur verður tvítugur í september. Hann hefur leikið í framlínu FH í þeim leikjum sem hann fékk tækifæri í vorleikjunum, oftast sem hægri kantmaður í 4-3-3 leikkerfinu.
Hann er samningsbundinn FH út árið en hefur nú verði lánaður til Víkings út keppnistímabilið.