Fotbolti.net
01.08.08 - 09:10
Hafliði Breiðfjörð

Víðir lánaði Þór Steinarsson til Fram (Staðfest)

Þór Steinarsson í leik með Víði gegn Fylki í VISA-bikarnum í sumar. Þarna á hann í baráttu við Viðar Guðjónsson þá leikmann Fylkis sem einnig er kominn til Fram.

Þór Steinarsson í leik með Víði gegn Fylki í VISA-bikarnum í sumar. Þarna á hann í baráttu við Viðar Guðjónsson þá leikmann Fylkis sem einnig er kominn til Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar fengu Þór Steinarsson leikmann Víðis úr Garði á láni út tímabilið áður en félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti í gærkvöld. Þór Steinarsson er 19 ára gamall og hefur leikið mikið með Víði í 2. deildinni í sumar.
Hann var valinn efnilegasti leikmaður Víðis sem lék í 3. deildinni á síðustu leiktíð en vann sér sæti í 2. deildinni.

Hann hefur leikið 12 af 14 leikjum Víðis í 2. deildinni í sumar auk tveggja leikja liðsins í VISA-bikarnum.

Samtals hefur hann leikið 31 leik með Víði og skorað í þeim tvö mörk.

Segja má að um sé að ræða mikinn missi fyrir Víði að Þór skuli lánaður frá félaginu á þessari stundu því liðið á í harðri baráttu við Aftureldingu um að ná öðru sæti deildarinnar og komast þannig upp í 1. deild. Liðið er nú í þriðja sæti með 28 stig en Afturelding í öðru með 31 stig. ÍR trónir á toppnum með 40 stig.

Framarar eru í sjöunda sæti Landsbankadeildarinnar með 21 stig. Auk Þórs höfðu þeir fengið Viðar Guðjónsson úr Fylki og Almarr Ormarsson frá KA í félagaskiptaglugganum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.