Fotbolti.net
01.08.08 - 18:08
Hafliði Breiðfjörð

Hector Cuper tekur við landsliði Georgíu (Staðfest)

Hector Cuper.

Hector Cuper.

Canon

Mynd: Getty Images

Argentínumaðurinn Hector Cuper sem áður þjálfaði Valencia og Inter Milæan hefur verið ráðinn þjálfari landsliðs Georgíu en þetta staðfesti knattspyrusamband Georgíu í dag.
Cuper sem er 52 ára gamall tekur við starfinu af Þjóðverjanum Klaus Toppmüller sem var rekinn í apríl eftir að Georgíu tókst ekki að komast á úrslitakeppni Evrópumótsins.

Knattspyrnusamband Georgíu sagði að Cuper muni koma til Tbilisi í næstu viku og skrifi undir tveggja ára samning við sambandið. Þetta verður áður en liðið hefur keppni í undankeppni HM 2010 þar sem Georgía mætir Ítalíu, Búlgaríu, Írlandi, Kýpur og Svartfjallalandi.

Cuper stýrði Valencia til sigurs í Meistaradeild Evrópu árin 2000 og 2001 og þjálfaði líka Real Betis og Real Mallorca á Spáni.

Hann þjálfaði síðast hjá Parma á Ítalíu sem rak hann í maí, viku áður en þeir féllu úr Serie A.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.