01.08.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Ronnie Stam til Wigan (Staðfest)

Ronnie Stam í leik með Twente gegn Werder Bremen.

Mynd: Getty Images

Wigan hefur staðfest á vef sínum að hollenski varnarmaðurinn Ronnie Stam er genginn til lisð við félagið frá hollensku meisturunum í Twente en kaupverðið var ekki gefið upp.
Stam sem er 26 ára gamall hafði verið í tvo daga í viðræðum við Wigan auk þess sem hann fór í læknisskoðun hjá félaginu áður en hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Roberto Martinez stjóri félagsins sagðist hæstánægður með komu leikmannsins. ,,Við erum gríðarlega spenntir hjá Wigan Athletic að bjóða Ronnie velkominn til félagsins,\" sagði Martinez.
,,Hann er 26 ára gamall og á hátindi ferils síns eftir að hafa spilað stórt hlutverk í því að FC Twente vann deildina á síðustu leiktíð, það er frábært að fá svo sterkan leikmann til félagsins.\"
Stam hó feril sinn hjá NAC Breda þar sem hann spilaði 122 leiki áður en hann fór til Twente árið 2008. Hann er fimmti Hollendingurinn sem spilar með Wigan í úrvalsdeildinni, áður höfðu þeir Arjan de Zeeuw, Denny Landzaat, Daniel De Ridder og Mario Melchiot spilað með liðinu í deildinni.