Fotbolti.net
01.08.10 - 09:29
Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar Steingrímsson til Völsungs (Staðfest)

Hallgrímur Mar í leik með Völsungi.

Hallgrímur Mar í leik með Völsungi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hallgrímur Mar Steingrímsson er genginn í raðir Völsungs að nýju frá KA og félagaskiptin náðu að ganga í gegn í dag, á lokadegi félagaskipta hér á landi.
Hallgrímur Mar er tvítugur. Hann hafði gengið til liðs við KA frá Völsungi fyrir sumarið 2009 en þá var Völsungur kominn í 3. deild en KA í 1. deild.

Hann snýr nú aftur heim til Völsungs þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn árið 2007 og hefur spilað 23 leiki og skorað fimm mörk.

Með KA lék hann 26 leiki á tveimur árum og skoraði þrjú mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.