01.08.10 - 13:35
Hafliði Breiðfjörð
Olga Færseth í Selfoss (Staðfest)

Olga Færseth leikur með Selfoss út tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Olga Færseth hefur tekið fram skóna að nýju og fékk í dag leikheimild með Selfoss en þangað kemur hún frá KR þar sem hún lék síðast árið 2008.
Olga er mikill markaskorari og mun án efa styrkja lið Selfoss en þar hittir hún fyrir Helenu Ólafsdóttur fyrrverandi samherja sinn og þjálfara hjá KR.
Helena hefur verið að gera frábæra hluti með lið Selfoss og liðið hefur unnið alla sína 11 leiki í 1. deildinni og hefur markatöluna 65-10.
Á vefnum Sunnlenska.is kemur fram að Katrín Ýr Friðgeirsdóttir markahæsti leikmaður Selfoss sem hefur skorað 25 mörk í sumar sé meidd og óvíst hversu lengi hún verður frá. Olga kemur því inn í hópinn en hún hefur skorað 269 mörk í 217 leikjum í efstu deild.
„Já, hún hefur ekki spilað í rúmt ár og við förum hægt af stað með hana. En það er frábært að fá hana inn á æfingar og gott fyrir stelpurnar að fá svona lærimeistara. Þetta er eins og að fá þjálfara inn á völlinn,“ sagði Helena við Sunnlenska.is.
Þar kemur einnig fram að Selfoss hefur fengið markvörðinn Dúfu Dröfn Ásgeirsdóttur til liðs við sig en hún kemur frá 1. deildarliði Hattar.

Heimild: Sunnlenska.is