01.09.08 - 15:22
Hörður Snævar Jónsson
Viktor Unnar á láni til Eastbourne Borough (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Viktor Unar Illugason leikmaður Reading hefur verið lánaður til Eastbourne Borough til eins mánaðar. Þetta staðfest Viktor í samtali við Fótbolta.net í dag.
Viktor Unnar mun vera í einn mánuð hjá Eastbourne Borough en hann mun þó æfa með Reading.
,,Ég fer bara þarna til að komast í form eftir að hafa glímt við meiðsli lengi og mun bara mæta í leiki hjá þeim,\" sagði Viktor Unnar í samtali við Fótbolta.net.
Eastbourne Borough leikur í Conference deildinni í Englandi en Viktor kemur beint inn í hóp liðsins á morgun þegar liðið leikur gegn Forest Green Rovers.
Viktor Unnar er 18 ára gamall framherji en hann hefur verið meiddur síðustu mánuði en hann var meiddur í baki.
Hann ætlaði að leika með Þrótti í sumar en hann þurfti að hætta við vegna meiðslanna.