Fotbolti.net
01.09.08 - 15:28
Magnús Már Einarsson

Steve Finnan til Espanyol (Staðfest)

Steve Finnan til Espanyol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Espanyol hefur keypt hægri bakvörðinn Steve Finnan frá Liverpool en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Finnan, sem er 32 ára gamall, skrifaði undir tveggja ára samning við Espanyol.

Liverpool er að reyna að krækja í Albert Riera frá Espanyol og líklegt er að hann fari til enska félagsins áður en félagaskipaglugginn lokar á miðnætti. Félagaskipti Finnan eru þó ekki tengt þeim félagaskiptum.

Finnan kom til Liverpool frá Fulham árið 2003 en hann lék alls 145 leiki með þeim rauðu og skoraði eitt mark á tíma sínum hjá félaginu.

Þá hefur Finnan einnig skorað tvö mörk í 50 landsleikjum með Írum á ferli sínum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.