Fotbolti.net
01.09.08 - 15:40
Brynjar Ingi Erluson

Tyrone Mears lánaður frá Derby til Marseille (Staðfest)

Tyrone Mears í baráttunni við Ashley Young í fyrra

Tyrone Mears í baráttunni við Ashley Young í fyrra

Canon

Mynd: Getty Images

Franska úrvalsdeildarfélagið Marseille hefur fengið til sín varnarjaxlinn Tyrone Mears að láni frá enska fyrstu deildar félaginu Derby County.
Mears, sem er 25 ára gamall vakti mikinn usla innan liðs Derby í síðustu viku þegar hann ákvað að fara á reynslu til Marseille án leyfis frá félaginu.

Paul Jewell, stjóri Derby sagði eftir atvikið að á meðan hann væri að stjórna liðinu þá fengi Mears aldrei að leika með liðinu aftur.

Mears hefur því staðist læknisskoðun hjá Marseille og persónulega skilmála og mun því fara á eins árs lán til félagins.

Hann hefur leikið 38 leiki með Derby og skoraði í þeim tvö mörk, en hann spilar sem hægri bakvörður og verða þessi skipta að teljast frekar óvænt á Englandi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.