Fotbolti.net
01.09.08 - 16:51
Hafliði Breiðfjörð

Albert Riera til Liverpool (Staðfest)

Albert Riera til Liverpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Liverpool hefur staðfest þær fréttir sem beðið hefur verið eftir að spænski kantmaðurinn Albert Riera sé genginn í raðir félagsins frá Espanyol í heimalandinu.

Þetta var staðfest á vefsíðu Liverpool nú rétt í þessu en fyrr í dag var staðfest að Steve Finnan væri farinn frá Liverpool til Espanyol. Riera fær treyjunúmer 11 hjá Liverpool.
,,Riera hefur gæðin sem við erum að leitast eftir,\" sagði Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool við vefsíðu félagsins.

,,Hann er vinstri fótarmaður sem spilar venjulega á vinstri kantinum, hann er góður í loftinu, sterkur, kraftmikill og góður sendingamaður.\"

,,Hann er þannig leikmaður eins og við höfum verið að tala um. Hann getur leikið á leikmenn og verði með góðar góðar sendingar inn í svæðið fyrir framherjana okkar.\"

,,Við höfum vitað af honum í langan tíma, síðan hann var hjá Mallorca og svo í gegnum feril hans hjá Bordeaux, Manchester City og Espanyol.\"

,,Hann getur talað ensku og auðvitað þekkir hann úrvalsdeildina, sem er mjög stór bónus. Venjulega þurfa erlendir leikmenn tíma þegar þeir fara til nýrra landa, en Riera þekkir deildina og fótboltann hérna þegar.\"

,,Hann fékk líka tilboð frá öðrum enskum félögum en hann sagði nei við þeim því hann vildi koma og spila fyrir okkur. Það skiptir mig miklu því það sýnir vilja hans til að spila fyrir Liverpool.\"

Heimild: Opinber vefsíða Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.