01.09.08 - 17:41
Arnar Geir Halldórsson
Ricardo Quaresma til Inter Milan (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalski snillingurinn Ricardo Quaresma er genginn til liðs við ítölsku meistaranna í Inter Milan.
Frá þessu var gengið nú á lokadegi félagsskiptagluggans en Quaresma kemur frá Porto í heimalandinu. Kaupverðið er talið vera í kringum 15 milljónir punda en Jose Mourinho hefur ekki farið leynt með áhugann á landa sínum í sumar og koma þessi kaup fáum á óvart.
Quaresma hóf feril sinn hjá Sporting Lisabon. Þaðan fór hann til Barcelona þar sem hann stóð enganveginn undir væntingum og hélt aftur með skottið á milli lappanna til Portúgals eftir aðeins eins árs dvöl á Spáni og gekk til liðs við Porto þar sem hann hefur blómstrað undanfarin ár.
Samningur hins 24 ára Quaresma er til fimm ára og mun hann leika í treyju númer 77 hjá ítalska stórveldinu.

Heimild: Sky