Fotbolti.net
01.09.08 - 17:48
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Brasilíska undrið Kerlon til Chievo (Staðfest)

Brasilíska undrið Kerlon til Chievo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska úrvalsdeildarfélagið Chievo hefur gengið frá kaupum á brasilíska undrabarninu Kerlon en hann kemur frá Cruzeiro í Brasilíu.
Kerlon, sem er 20 ára gamall er þekktur um allann heim fyrir ótrúlegt bragð sem hann þreytir á vellinum. Það felst í því að láta boltann skoppa á enninu yfir völlinn, og tekst honum það mjög vel og þurfa leikmenn yfirleitt að klippa hann niður þegar hann er kominn of langt.

Hann leikur sem framherji, en hann hefur lengi vel verið orðaður við félög í Evrópu þar sem hæfni hans spurðist fljótt út.

Þá hefur hann leikið fjölda leikja með U-17 ára liði Brasilíu og var markahæsti og valinn besti leikmaður Suður Ameríku keppnarinnar í Venesúela árið 2005.

Hægt er að sjá myndband af skemmtilegu \"selatrikki\" hans á vellinum

Heimild: Channel 4

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.