01.09.08 - 19:44
Magnús Már Einarsson
Blackburn krækir í markvörð frá Northampton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur keypt markvörðinn Mark Bunn frá Northampton en kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið.
Þessi 23 ára gamli leikmaður hefur krotað undir þriggja ára samning hjá Blackburn.
,,Ég er í skýjunum með að vera hér, þetta er draumur sem er að rætast,\" sagði Bunn.
,,Ég fór í læknisskoðun á sunnudag og ég dag skrifaði ég undir. Ég á ennþá eftir að átta mig á þessu en ég hlakka til að hitta strákana í liðinu.\"
Bunn lék 106 leiki á ferli sínum með Northampton og hann mun væntanlega muna vel eftir síðasta leiknum en hann var gegn Bolton í síðustu viku. Þar sigraði Northampton 2-1 á útivelli í leik liðanna í enska deildabikarnum.

Heimild: BBC