01.09.08 - 21:55
Magnús Már Einarsson
Carlo Nash til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton hefur keypt markvörðinn Carlo Nash frá Wigan en kaupverðið hefur ekki fengist uppgefið.
David Moyes stjóri Everton hefur verið að leita að markverði síðan að Stefan Wessels yfirgaf félagið í sumar.
Moyes náði síðan í kvöld að krækja í Nash, rétt fyrir lokun félagaskiptagluggans.
Nash kom til Wigan frá Preston í fyrra en honum gekk illa að festa sig í sessi og var lánaður til Stoke á síðasta tímabili.
Nú er þessi 34 ára gamli leikmaður farinn til Everton þar sem hann mun berjast við Tim Howard um markvarðarstöðuna.

Heimild: Sky