Fotbolti.net
01.09.08 - 22:16
Magnús Már Einarsson

Daniel Cousin til Hull (Staðfest)

Daniel Cousin til Hull (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Hull City hefur keypt framherjann Daniel Cousin frá Glasgow Rangers en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Cousin var á leið til Fulham í janúar en félagaskiptareglur bönnuðu það þar sem hann hafði þegar leikið með tveimur félögum á árs tímabili.

Cousin skoraði ellefu mörk í 28 leikjum á tíma sínum hjá Rangers en hann kom til liðsins frá Lens á 1,1 milljón punda í ágúst 2007.

Eitt af mörkum Cousin kom í 4-2 sigri Rangers á Celtic í grannaslag í gær en hann var einnig rekinn af velli í sama leik.

Þessi 31 árs gamli leikmaður er frá Gabon en hann hefur skorað 17 mörk í 47 landsleikjum fyrir þjóð sína.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.