01.09.08 - 23:49
Brynjar Ingi Erluson
Xisco til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle United hefur gengið frá kaupum á spænska framherjanum Xisco sem spilar fyrir Deportivo.
Xisco, sem er 22 árs gamall gerir fimm ára samning við Newcastle eftir að hafa staðist læknisskoðun nú seint í kvöld. Kaupverðið er talið nema um 5,7 milljónir punda en getur svo hækkað upp í 8,3 milljónir með ásettum bónusum.
Hann brilleraði í fyrra með Deportivo þegar hann skoraði 9 mörk í 24 leikjum og var einn af lykilmönnum liðsins.
Þetta er annar leikmaðurinn sem Keegan fær í dag, en hann fékk Ignacio Gonzalez, miðvallarleikmanninn kunna frá Valencia að láni út tímabilið.

Heimild: Sky