Fotbolti.net
01.09.08 - 23:45
Davíð Örn Atlason

Dimitar Berbatov til Manchester United (Staðfest)

Berbatov er kominn til United.

Berbatov er kominn til United.

Canon

Mynd: Getty Images

Dimitar Berbatov er genginn í raðir Englands- og Evrópumeistara Manchester United frá Tottenham, en hann skrifaði undir samning sem að heldur honum á Old Trafford í fjögur ár.

Kaupverðið á honum er talið vera rúmlega þrjátíu milljónir punda og fer Frazier Campbell á lán til Tottenham út tímabilið
Mikil umræða hefur verið um framtíð Berbatov í sumar og í dag en nú er ljóst að hann er gegnin í raðir Manchester United.

Manchester City lagði fram tilboð í Berbatov í dag sem var samþykkt en slíkt hið sama gerðist hjá United.

Berbatov hefur ekki verið í leikmannahóp Tottenham í síðustu tveimur leikjum vegna þessara skipta.

Hann átti frábært tímabil með Tottenham í fyrra og skoraði 15 mörk í deildinni og 23 í heildina og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.