Fotbolti.net
01.09.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Felipe Caicedo til Levante (Staðfest)

Felipe Caicedo til Levante (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Spænska félagið Levante náði að krækja í Felipe Caicedo framherja Manchester City á láni áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær.

Caicedo, sem er frá Ekvador, var í láni hjá Sporting Lisabon og Malaga á síðasta tímabili.

Þessi 21 árs gamli leikmaður skoraði fjögur mörk í 18 leikjum með Malaga og hjálpaði liðinu að forðast fall.
Hann mun núna aftur leika í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og hjálpa Levante í fallbaráttunni.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.