Fotbolti.net
01.10.08 - 13:25
Hafliði Breiðfjörð

Leroy Lita lánaður til Norwich (Staðfest)

Leroy Lita fagnar marki með Reading.

Leroy Lita fagnar marki með Reading.

Canon

Mynd: Getty Images

Framherjinn Leroy Lita hefur verið lánaður frá Reading til Norwich City sem einnig leikur í Championship deildinni, næst efstu deild Englands.
Lita sem er fyrrverandi leikmaður U21 árs liðs Englands hefur fallið niður goggunarröðina hjá Reading og hefur komið við sögu í fjórum leikjum liðsins á tímabilinu en hefur ekki enn skorað.

Hann gerir nú eins mánaðar lánssamning við Norwich og spilar væntanlega sinn fyrsta leik á Carrow Road gegn Derby á laugardaginn.

,,Ég get ekki lýst því hversu ánægður ég er að tryggja lánssamning við Leroy Lita frá Reading,\" sagði Glenn Roeder stjóri Norwich á vefsíðu félagsins í dag.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.