01.12.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Brynjar Skúlason tekur við Huginn (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Brynjar Skúlason hefur verið ráðinn þjálfari hjá 3.deildarliði Huginn á Seyðisfirði.
Brynjar þekkir vel til liðsins því að hann hefur leikið með Huginn frá því árið 2005.
Þá þjálfaði hann einnig Huginn þegar að liðið lék í annarri deildinni árið 2006.
Brynjar tekur við liðinu af Ljubisa Radovanovic sem hefur þjálfað Seyðisfirðinga undanfarin tvö ár.
Í sumar komst Huginn í úrslitakeppnina í 3.deild en varð að lúta í lægra haldi gegn KV.

Heimild: Heimasíða Seyðisfjarðar