Fotbolti.net
01.12.09 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Ragnar Mar Sigrúnarson í HK (Staðfest)

Keflavík sýndi líka áhuga

Ragnar Mar (í miðjunni) er á leið í HK.

Ragnar Mar (í miðjunni) er á leið í HK.

Canon

Mynd: Austurglugginn/Gunnar

Ragnar Mar Sigrúnarson mun skrifa undir þriggja ára samning við HK í dag en hann kemur til félagsins frá Víkingi Ólafsvík.
Þessi 25 ára gamli bakvörður hefur verið fastamaður hjá Víkingi undanfarin ár en hann hefur leikið með liðinu frá því að það fór upp úr 3.deildinni árið 2003.

Keflavík sýndi einnig áhuga á að semja við Ragnar en hann ákvað að ganga til liðs við HK.

,,Það voru þrjú félög í 2.deildinni sem sýndu áhuga sem og HK og Keflavík. Það var ýmislegt í stöðunni,\" sagði Ragnar Mar við Fótbolta.net í dag.

,,Það hefði verið spennandi að fara í Keflavík en HK var bara töluvert meira spennandi. Ég hef verið í níu ár hjá Ólafsvík og langaði að fá nýja áskorun og prófa eitthvað spennandi.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.