01.12.09 - 21:51
Magnús Már Einarsson
Stefán Jóhann Eggertsson í Val (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson
Valsmenn fengu í dag Stefán Jóhann Eggertsson til liðs við sig frá HK en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.
Stefán er 25 ára gamall bakvörður en hann hefur alla sína tíð leikið með HK. Í sumar skoraði hann sex mörk í þrettán leikjum í fyrstu deildinni.
Stefán hefur verið til skoðunar hjá Val að undanförnu en hann lék meðal annars með liðinu í æfingaleik gegn FH á dögunum. Stefán er spenntur fyrir því að ganga í raðir Vals.
,,Mér líst bara alveg gríðarlega vel á það, þetta er flottur klúbbur með langa sögu og eina glæsilegustu umgjörð á landinu,\" sagði Stefán Jóhann á heimasíðu Vals.
,,Mér leist bara vel mjög vel á Val og ekki spillti það fyrir að öll tengdafjölskyldan eru miklir Valsarar þannig að ákvörðunin var frekar auðveld.\"
Stefán Jóhann lék í stöðu hægri bakvarðar með Val gegn FH og hann stefnir á að festa sig í sessi í byrjunarliðinu.
,,Já það er alveg á hreinu að ég er ekki kominn í Val til að sitja á bekknum þar er deginum ljósara. Þannig að jú að sjálfsögðu geri ég það.\"
,,Ég er kominn í Val til að vinna titla þannig að í mínum huga eru markmiðin skýr... Toppbarátta og ekkert annað,\" sagði Stefán við heimasíðu Vals.

Heimild: Heimasíða Vals