Fotbolti.net
01.12.20 - 08:00
Victor Pálsson

Aguero missti af æfingu og spilar ekki

Aguero missti af æfingu og spilar ekki
Canon

Mynd: Getty Images

Sergio Aguero, leikmaður Manchester City, spilar ekki með liðinu í kvöld sem mætir Porto í Meistaradeildinni.
Aguero hefur verið að glíma við meiðsli á tímabilinu en sneri til baka í síðustu viku í 1-0 sigri á Olympiakos.

Argentínumaðurinn missti hins vegar af æfingu City á mánudaginn en það staðfesti stjóri liðsins, Pep Guardiola.

Samkvæmt Guardiola er Aguero að glíma við smávægileg meiðsli og hefur hann ekki áhyggjur af standi leikmannsins.

City er búið að tryggja sér áfram í Meistaradeildinni og er með fullt hús stiga eftir fjóra leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.