Fotbolti.net
02.02.10 - 07:48
Davíð Örn Atlason

Damien Johnson til Plymouth (Staðfest)

Damien Johnson til Plymouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham City leyfði Damien Johnson að fara á frjálsri sölu til Plymouth Argyle í gær.
Þessi norður-írski landsliðsmaður hefur skrifað undir tveggja og hálfs árs samning við Plymouth.

Hann spilaði aðeins þrjá leiki fyrir Birmingham á þessari leiktíð en hann gekk til liðs við félagið árið 2002.

,,Ég heyrði fyrst af áhuga Plymouth um helgina,\" sagði Johnson við opinbera vefsíðu félagsins.

,,Ég er kominn hingað og ég ætla að gefa mig allan í þetta og standa mig vel. Ég var pirraður hjá Birmingham á þessari leiktíð og ég vil spila rétt eins og allir leikmenn.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.