02.02.10 - 16:50
Hörður Snævar Jónsson
Benjani á láni til Sunderland (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnusambandið hefur staðfest félagaskipti Benjani Mwaruwari til Sunderland frá Manchester City.
Benjani sem er frá Zimbabwe mun því vera á láni út þessa leiktíð hjá Steve Bruce og lærisveinum hans.
Enska sambandið fór yfir gögn í þessu máli og ákvað að staðfesta skiptin þar sem Sunderland reyndi að koma gögnum til þeirra áður en glugginn lokaði.
,,Enska úrvalsdeildin staðfestir að allt var í lagi og að skiptin áttu sér stað áður en glugginn lokaði.\"

Heimild: Sporting Life