Fotbolti.net
02.02.26 - 15:30
Kári Snorrason

Svona er fyrsta ótímabæra Lengjudeildarspáin

Þrótti er spáð toppsætinu.

Þrótti er spáð toppsætinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X977 á laugardaginn var ótímabæra spáin fyrir Lengjudeildina opinberuð. Baldvin Már Borgarsson sérfræðingur þáttarins mætti í hljóðver, skoðaði liðin og gaf þeim einkunn fyrir félagaskiptamarkaðinn.

Baldvin spáir því að Þróttur endi í efsta sæti deildarinnar og þar með tryggi sér sæti í Bestu deildinni. Þróttur var nálægt því að komast upp á síðasta ári en liðið tapaði úrslitaleik gegn Þór í lokaumferðinni og féll síðan úr leik gegn HK í undanúrslitum umspilsins.

Njarðvík, Afturelding, HK og Fylkir, munu öll tryggja sér sæti í umspilinu sem lýkur með úrslitaleik á Laugardalsvelli ef spáin gengur eftir.

Nýliðum Gróttu er spáð í 11. sæti deildarinnar og þá er Völsungi spáð botnsætinu með ævintýramanninn Patrick De Wilde við stjórnvölinn.
Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri
TENGT EFNI

Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri

Ótímabæra Lengjudeildarspáin
1. Þróttur R.
2. Njarðvík
3. Afturelding
4. HK
5. Fylkir
6. Vestri
7. ÍR
8. Grindavík
9. Leiknir R.
10. Ægir
11. Grótta
12. Völsungur

Baldvin Már Borgarsson sá um ótímabæru spánna.

Baldvin Már Borgarsson sá um ótímabæru spánna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útvarpsþátturinn - Ólga í FH og Lengjudeildin aldrei verið stærri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.