Fotbolti.net
02.03.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Neil Warnock tekur við QPR (Staðfest)

Neil Warnock tekur við QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Queens Park Rangers hefur ráðið Neil Warnock sem knattspyrnustjóra en hann kemur til félagsins frá Crystal Palace.
Warnock, sem er 61 árs, er búinn að skrifa undir þriggja og hálfs árs samning við QPR en hann tekur við liðinu af Mick Harford.

Hinn skapbráði Warnock hefur stýrt Crystal Palace frá því árið 2007 en hann var ekki lengi að stökkva á tilboð QPR þar sem að Palace á í miklum fjárhagsvandræðum.

Warnock er fimmti knattspyrnustjórinn hjá QPR á þessari leiktíð en mikið hefur gengið á hjá félaginu undanfarin ár.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.