Fotbolti.net
02.03.12 - 20:00
Brynjar Ingi Erluson

Fyrirliði Portsmouth lánaður til Cardiff (Staðfest)

Lawrence í leik með Stoke

Lawrence í leik með Stoke

Canon

Mynd: Getty Images

Liam Lawrence, fyrirliði Portsmouth í ensku fyrstu deildinni hefur verið lánaður til velska liðsins Cardiff City, sem leikur í sömu deild.
Lawrence, sem er 30 ára gamall verður á láni hjá Cardiff út tímabilið, en eigendur Portsmouth eru að gera allt sem í valdi þeirra stendur til þess að bjarga liðinu frá gjaldþroti og hafa margir sterkir leikmenn yfirgefið félagið síðustu vikur.

Lawrence hefur spilað 58 leiki fyrir Portsmouth frá því hann kom frá Stoke City 2010, en hann kom til Portsmouth upphaflega á láni áður en félagið ákvað að kaupa hann á síðasta ári.

Hann hefur gegnt stöðu fyrirliða hjá Portsmouth, en ljóst er að hann kemur til með að verða gríðarlegur styrkur fyrir Aron Einar Gunnarsson og félaga í Cardiff í baráttunni um sæti í úrvalsdeildinni.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.