Fotbolti.net
02.04.09 - 13:51
Hafliði Breiðfjörð

Embla Grétarsdóttir í Val (Staðfest)

Embla í leik með KR gegn Val.

Embla í leik með KR gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Embla Grétarsdóttir er að ganga til liðs við Val frá KR en þetta var staðfest á vef KR nú í dag. KR, Embla og Valur hafa komist að samkomulagi um þetta segir á vef KR.

KR og Valur mætast í Lengjubikar kvenna í kvöld en Embla verður ekki komin með leikheimild fyrir þann leik. Hún hafði tilkynnt KR í síðustu viku að hún væri hætt með liðinu og vildi leita annað.
Embla Grétarsdóttir er 26 ára gömul og var samningslaus frá KR í október en gerði þá nýjan samning við félagið út tímabilið.

Embla hefur verið í KR síðan árið 1998 er hún gekk í raðir félagsins frá Sindra á Hornafirði.

Á þeim tíma hefur hún leikið 135 leiki fyrir liðið í deildinni og skorað í þeim 13 mörk. Hún spilaði ýmist í vörninni eða á miðjunni hjá KR í fyrrasumar þegar hún lék 15 af leikjum liðsins í Landsbankadeildinni.

Hún hefur átt sæti í íslenska landsliðshópnum sem tryggði sér sæti á EM 2009 síðasta haust. Samtals hefur hún leikið tíu leiki með A-landsliðinu og skorað í þeim eitt mark auk fjölda leikja með yngri landsliðunum.

Heimild: Vefur KR

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.