Fotbolti.net
02.04.12 - 15:45
Magnús Már Einarsson

Tindastóll fær þriðja bróðirinn frá Englandi (Staðfest)

Tindastóll fær þriðja bróðirinn frá Englandi (Staðfest)
Canon

Mynd: Valgeir Kárason

Tindastóll hefur fengið liðsstyrk fyrir fyrstu deildina í sumar en markvörðurinn Seb Furness mun leika með liðinu í sumar. Hann er væntanlegur til landsins í maí.

Furness er fæddur árið 1986 en hann var á mála hjá Middlesbrough frá tíu ára aldri og þar til hann varð 17 ára.
Eftir það fór hann til Hartlepool og í kjölfarið lék Seb með liðum í ensku neðri deildunum. Undanfarin ár hefur Seb spilað í bandaríska háskólaboltanum í Texas auk þess að vera markmannsþjálfari þar.

Theo Furness bróðir Seb lék með Tindastól síðastliðið sumar og bróðir þeirra Dominic mun einnig leika með liðinu í sumar. Auk bræðranna þriggja mun enski sóknarmaðurinn Ben J Everson leika með Tindastóli í sumar.

Gísli Eyland Sveinsson varði mark Tindastóls þegar liðið komst upp úr annarri deildinni í fyrra en hann lagði hanskana á hilluna í vetur.

Arnar Magnús Róbertsson hefur varið mark Stólanna í Lengjubikarnum en Seb mun nú berjast við hann um markvarðarstöðuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.