Fotbolti.net
02.04.12 - 17:09
Magnús Már Einarsson

Viktor Unnar í Hauka (Staðfest)

Viktor Unnar í Hauka (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haukar hafa náð samkomulagi um að fá Viktor Unnar Illugason framherja Breiðabliks á láni í sumar. Þetta staðfesti Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Hauka í samtali við Fótbolta.net í dag.
Viktor Unnar fór með Haukum í æfingaferð til Spánar í síðustu viku og verður með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Þessi 22 ára gamli leikmaður gekk aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Breiðablik í fyrravetur.

Meiðsli settu hins vegar strik í reikninginn hjá Viktori síðastliðið sumar en hann lék átta leiki í Pepsi-deildinni.

Viktor fór til Reading á Englandi árið 2006 en hann lék með Val og Selfossi áður en hann gekk aftur til liðs við Blika í fyrravetur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.