Klara Mist Karlsdóttir er gengin í raðir HK á láni frá Þrótti út leiktíðina.
Klara, sem er fædd árið 2003, er öflugur miðvörður sem getur einnig spilað á miðsvæðinu.
Hún færir HK-ingum dýrmæta reynslu í komandi átökum í Lengjudeildinni.
Þetta er í annað sinn sem Klara fer á láni til HK, en hún eyddi einnig seinni hluta tímabilsins í fyrra í Kópavogi.
Klara spilaði 7 deildarleiki með HK á síðasta ári og skoraði eitt mark, sem var fyrsta deildarmark hennar í meistaraflokki. Áður var hún á mála hjá Fylki og Stjörnunni.
„Við bjóðum Klöru velkomna aftur í HK og þökkum við Þrótti fyrir fagmannleg vinnubrögð í tengslum við félagsskiptin,“ segir í tilkynningu HK-inga.


