KV hefur fengið svakalegan styrk inn í leiktíðina en Óliver Dagur Thorlacius er kominn til félagsins frá KR.
KR-ingar tilkynntu fyrir fjórum mánuðum að Óliver Dagur væri kominn í hlé frá fótbolta en hann vildi einbeita sér alfarið að þjálfun.
Óliver er uppalinn KR-ingur sem hóf meistaraflokksferil sinn þar áður en hann söðlaði um og lék með bæði Gróttu og Fjölni. Hann sneri aftur heim í KR undir lok árs 2024.
EIns og hefur áður komið fram ákvað hann að taka sér hlé frá fótbolta til að einbeita sér að þjálfun. Hann hefur verið að þjálfa 3. og 5. flokk karla ásamt 6. flokk kvenna ásamt því að vera klára UEFA A gráðuna.
Hann hefur spilað með KV á undirbúningstímabilinu og skoraði meðal annars í 5-0 stórsigrinum á KB í Mjólkurbikarnum á dögunum.
KV hefur nú tilkynnt að Óliver verði með þeim í sumar og hjálpa þeim í átökunum í 3. deildinni.
Á síðasta ári hafnaði KV í 7. sæti deildarinnar með 28 stig.



