Fotbolti.net
02.05.09 - 12:44
Hafliði Breiðfjörð

Kristján Hauksson frá Val í Fram (Staðfest)

Kristján Hauksson í leik með Fram. Hann snýr nú aftur í raðir félagsins.

Kristján Hauksson í leik með Fram. Hann snýr nú aftur í raðir félagsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Miðvörðurinn sterki, Kristján Hauksson, er genginn í raðir Fram frá Val en þetta var staðfest nú í morgun eftir að leikmaðurinn hafði skrifað undir samning við Safamýrarfélagið. Ekki er um lánssamning að ræða heldur skiptir leikmaðurinn um félag og gerir þriggja ára samning við Fram.
Kristján sem er 23 ára gamall er uppalinn hjá Fram og er því að snúa aftur heim í heiðardalinn eftir ársdvöl hjá Val og Fjölni. Hann hafði gengið í raðir Vals síðasta vetur en verið lánaður til Fjölnis yfir alla síðustu leiktíð.

Hann lék 21 leik með Fjölni í Landsbankadeildinni síðasta sumar auk fimm leikja í VISA-bikarnum. Hann skoraði tvö mörk í deildinni. Að tímabilinu loknu sneri hann aftur úr láninu til Vals þar sem hann var mikið notaður sem bakvörður í Reykjavíkurmótinu og Lengjubikarnum enda Valur með fjóra aðra miðverði. Hann hefur nú ákveðið að söðla um að nýju og snúa aftur heim í Fram.

Kristján leysti miðvarðarstöðuna hjá Fram síðast sumarið 2007 og átti marga frábæra leiki í vörn liðsins og var meðal annars einu sinni valinn leikmaður umferðarinnar á Fótbolta.net.

Hann á að baki 78 leiki í deild og bikar og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Hann hóf feril sinn með meistaraflokki Fram sumarið 2003 og sumarið 2007 var hann valinn efnilegasti leikmaður liðsins hjá Fram.


Sameiginleg yfirlýsing Fram og Vals
Knattspyrnufélögin Valur og Fram hafa komist að samkomulagi um félagaskipti Kristján Haukssonar í Fram.

Fram hafði samband við Val og komust félögin að samkomulagi um félagskiptin í morgun.

Virðingarfyllst.
Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnufélagið Fram
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.