02.05.09 - 19:03
Hafliði Breiðfjörð
Hrefna Huld Jóhannesdóttir í KR (Staðfest)
Væntanlega með gegn Val í viðureign meistara meistaranna á morgun

Hrefna stansaði stutt við í Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hrefna stansaði stutt við í Stjörnunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Hrefna Huld Jóhannesdóttir er gengin í raðir KR og verður væntanlega með leikheimild með liðinu í Meistarakeppni KSÍ gegn Val annað kvöld.
Hrefna gekk til liðs við Stjörnuna þann 4. nóvember 2008 og skrifaði þá undir þriggja ára samning við félagið. Hún var svo leyst undan samningi hjá félaginu í síðustu viku og hóf æfingar hjá KR.
Hún hafði einnig rætt við Keflavík en endaði svo á að ganga til liðs við KR og gengið var frá félagaskiptum hennar í kvöld.
Hrefna Huld hefur spilað níu A-landsleiki og skorað í þeim tvö mörk en hún skoraði 19 mörk í 18 leikjum fyrir KR í Landsbankadeild kvenna í fyrra, ásamt fjórum mörkum í VISA bikarnum.
Ásamt KR hefur hún leikið með Breiðabliki og ÍBV á Íslandi en einnig hefur hún spilað í Noregi.