Fotbolti.net
02.05.12 - 15:01
Magnús Már Einarsson

Denis Selimovic í Keflavík (Staðfest)

Denis Selimovic í Keflavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Jón Örvar

Keflvíkingar hafa samið við slóvenska miðjumanninn Denis Selimovic en samningurinn gildir út tímabilið.

Denis, sem er 32 ára gamall, hefur verið á reynslu hjá Keflvíkingum undanfarnar vikur.
Hann leikur sem miðjumaður en hefur einnig leikið í vörninni á sínum ferli.

Denis hefur leikið með nokkrum liðum í Slóveníu og eitt ár í Bosníu en hann lék með Álasund í Noregi á árunum 2007-2009 þar sem hann lék meðal annars með Haraldi Frey Guðmundssyni varnarmanni Keflvíkinga.

Denis gæti leikið sinn fyrsta mótsleik með Keflavík þegar liðið mætir Fylki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudagskvöld.

Heimild: Heimasíða Keflavíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.