02.05.12 - 19:26
Brynjar Ingi Erluson
Tim Wiese til Hoffenheim eftir tímabilið (Staðfest)

Tim Wiese

Mynd: Getty Images

Tim Wiese

Mynd: Getty Images

Þýski markvörðurinn Tim Wiese, sem leikur með Werder Bremen í heimalandinu gengur til liðs við Hoffenheim eftir tímabilið.
Wiese, sem er 30 ára gamall, hefur verið einn af bestu markvörðum þýsku deildarinnar undanfarin ár, en hann gaf til kynna fyrir nokkrum mánuðum að hann kæmi til með að yfirgefa Werder Bremen eftir tímabilið.
Hann hefur nú samþykkt fjögurra ára samning hjá Hoffenheim, þar sem Markus Babbel er við stjórnvölinn. Gylfi Þór Sigurðsson leikur með liðinu, en hann er þó þessa stundina á láni hjá Swansea í ensku úrvalsdeildinni.
Hoffenheim staðfesti að Wiese myndi ganga til liðs við félagið í dag, en Babbel er ánægður með að fá markvörðinn reynda.
,,Við vildum ekki missa af því tækifæri að fá svona reyndan og góðan atvinnumann í okkar raðir,\" sagði Babbel.

Heimild: Sky