02.05.12 - 22:09
Brynjar Ingi Erluson
Delio Rossi rekinn frá Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Fiorentina hefur látið Delio Rossi, þjálfara liðsins, taka pokann sinn fyrir atvik sem átti sér stað í kvöld.
Rossi ákvað að taka Adam Ljajic af velli á 33. mínútu leiks Fiorentina og Novara, en Ljajic klappaði fyrir þjálfaranum í kjölfarið og þá fór sérstök atburðarrás af stað.
Rossi réðst á Ljajic. Hann tók utan um háls hans og lét vaða þungum höggum í andlit hans, en stjórnarmenn Fiorentina gátu lítið annað gert en að láta ítalska þjálfarann flakka, enda um stórfellda líkamsárás að ræða.
Það fylgir þá sögunni að leiknum lauk með 2-2 jafntefli, en yfirlýsingu frá Fiorentina má sjá hér að neðan.
,,Eins leiðinlegt og þetta var þá var þetta alvarlegt atvik. Það er hreinlega ótrúlegt hvernig svona rólegur maður missti stjórn á skapi sínu, en það varð að reka hann,\" segir í yfirlýsingunni.

Heimild: Football Italia