Ed Still, stjóri Watford, er undir mikilli pressu en það eru háværar sögusagnir um að hann verði rekinn eftir tímabilið.
Still tók við af Javi Garcia í febrúar en honum hefur aðeins tekist að vinna þrjá leiki af 14 í Championship deildinni og liðið situr í 16. sæti.
Pozzo fjölskyldan keypti Watford árið 2012. Eigendurnir eru þekktir fyrir óþolinmæði en 23 stjórar hafa stýrt liðinu á þeim tíma. Þau ráku Sean Dyche stuttu eftir að þau keyptu félagið. Dyche var spurður að því hvort hann vildi taka aftur við liðinu.
„Ekki séns, hvað ertu að tala um? Ég elskaði að vera hjá Watford, átti frábæran tíma sem leikmaður, aðstoðarþjálfari, þjálfari í akademíunni og sem stjóri. En nei, ég myndi ekki taka við þessu," sagði Dyche.



