Fotbolti.net
02.06.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Zinedine Zidane kominn aftur til Real Madrid (Staðfest)

Zidane í leik með Real Madrid.

Zidane í leik með Real Madrid.

Canon

Mynd: Getty Images

Zinedine Zidane er kominn aftur til liðs við Real Madrid en þar hefur hann tekið við nýju starfi eftir að Florentino Perez varð forseti félagsins í gær.
Zidane mun verða ráðgjafi Perez sem tók við forsetaembættinu í gær eftir að ljóst varð að enginn myndi bjóða sig fram gegn honum.

Perez hafði upphaflega keypt Zidane til Real Madrid árið 2001 en þá var hann líka forseti félagsins.

Þá hefur íþróttastjórinn Jorga Valdano verið ráðinn framkvæmdastjóri félagsins og aðstoðarmaður forsetans.

Miguel Pardeza mun svo taka við af Predrag Mijatovic sem yfirmaður íþróttamála.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.