Fotbolti.net
02.06.09 - 09:52
Hafliði Breiðfjörð

Elrio van Heeden til Blackburn (Staðfest)

Elrio van Heerden í leik með Suður Afríku.

Elrio van Heerden í leik með Suður Afríku.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn hefur gengið frá samningum við suður afríska landsliðsmiðjumanninn Elrio van Heerden sem kemur frítt frá Club Brugge í Belgíu.
Heerden sem er 25 ára gamall hóf feril sinn með FC Kaupmannahöfn í Dnamörku. Hann gerði nú tveggja ára samning við Blackburn.

Sam Allardyce stjóri liðsins ætlar að styrkja miðjuna hjá sér og Aaron Mokoena fer til Portsmouth og Tugay leggur skóna á hilluna.

Van Heerden á að baki 25 landsleiki fyrir Suður Afríku sem spilar á Álfukeppninni í sumar.

Hann er fjölhæfur miðjumaður sem getur spilað bæði á köntunum eða miðri miðjunni. Hann er fyrstu kaup Blackburn í sumar og hjá félaginu hittir hann fyrir Benni McCarthy liðsfélaga sinn í suður afríska landsliðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.