Fotbolti.net
02.06.09 - 14:06
Magnús Már Einarsson

Ernesto Valverde ráðinn þjálfari Villareal (Staðfest)

Ernesto Valverde ráðinn þjálfari Villareal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Villareal hefur ráðið Ernesto Valverde sem þjálfara en hann tekur við liðinu af Manuel Pellegrini sem tók við stjórnartaumunum hjá Real Madrid í gær.
Valverde var þjálfari hjá Olympiakos í Grikklandi á síðasta ári en samningur hans var ekki framlengdur þrátt fyrir að liðið hafi náð að vinna bæði deild og bikar.

Valverde er 45 ára gamall en hann þjálfaði áður Athletic Bilbao og Espanyol.

Villareal missti af sæti í Meistaradeildinni í lokaumferðinni á Spáni um helgina en liðið endaði í fmmta sæti deildarinnar og leikur því í Evrópudeildinni á næstu leiktíð.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.