Fotbolti.net
02.06.09 - 18:03
Magnús Már Einarsson

Denilson semur við félag í Víetnam (Staðfest)

Denilson semur við félag í Víetnam (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Brasikíslki kantmaðurinn Denislon hefur samið við Hai Phong Cement í Víetnam.
Þessi 31 árs gamli leikmaður var árið 1998 dýrasti leikmaður í heimi þegar að Real Betis keypti hann frá Sao Paulo á 21,5 milljónir punda.

Síðan þá hefur ferillinn legið niður á við en hann hefur meðal annars leikið í Austurlöndum fjær og í Suður-Ameríku.

Denilson æfði með Bolton í nokkra daga á nýliðnu tímabili en núna hefur hann ákveðið að ganga til liðs við Hai Phong í Víetnam og leika með liðinu á síðari hluta tímabilsins.

,,Ég veit ekkert um fótbolta í Víetnam,\" sagði Denilson klár í nýjan kafla á ferlinum eftir hafa samið við Hai Phong.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.